Á engan hátt er ofmælt að málstofa Landssamtaka lífeyrissjóða um samskipti fjárfesta og stjórna/stjórnenda félaga hafi heppnast eins og til var stofnað og reyndar gott betur.
Vel á annað hundrað manns höfðu skráð sig til leiks og fjölga þurfti stólum í salnum Háteigi á Hóteli Reykjavík Grand til að allir mættu sáttir sitja þar frá morgni fram yfir hádegi 28. janúar 2025.
Frummælendur komu úr mörgum, ólíkum áttum og fluttu erindi hvert öðru áhugaverðara. Í fyrri hálfleik málþings var fjallað um stjórnir félaga og starfshætti en í þeim síðari um hlutverk eigenda og hluthafafundi.
Þarna var tekið fræðilega á viðfangsefnum, skoðanir viðraðar og reynslusögur sagðar.
Pallborðsumræður voru í lok hvors hálfleiks með öðrum þátttakendum en höfðu framsögu. Þannig voru alls sex frummælendur með undirbúin erindi og sex til viðbótar í frjálsum umræðum í pallborði. Bergur Ebbi Benediktsson, fundar- og umræðustjóri, var í hlutverki spyrils og stuðlaði að upplýsandi skoðanaskiptum pallborðsfólksins.
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, rifjaði upp í setningarávarpi að fyrir réttum tveimur árum hefðu samtökin staðið að hliðstæðri samkomu um innviðafjárfestingar í sama fundarsal troðfullum. Í minningunni stæði upp úr hve umræðan þá hefði verið áhugaverð, einlæg, opinská og árangursrík. Hún kvaðst trúa því að sambærilegt hugarfar og nálgun ríkti á málþingi dagsins. Víst er að það gekk fyllilega eftir.