Ísland var í ár í fyrsta sinn með í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer - CFA Institute og voru niðurstöðurnar gerðar opinberar þriðjudaginn 19. október. Ísland fékk A einkunn og var í efsta sæti af þeim 43 ríkjum sem tóku þátt. Vísitalan metur heildarstyrk lífeyriskerfa út frá 3 meginþáttum, nægjanleika, sjálfbærni og trausti og var Ísland efst í flokkunum nægjanleiki og sjálfbærni.
Hér má sjá frétt sem Landssamtökin birtu um niðurstöður Mercer - CFA Institute vísitölunnar fyrir Ísland.
Landssamtök lífeyrissjóða boða af þessu tilefni til morgunverðarfundar þar sem farið verður yfir helstu niðurstöður vísitölunnar og kallað eftir viðbrögðum frá hagaðilum sem hafa áhrif á áframhaldandi þróun kerfisins. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli miðvikudaginn 27. október og hér fyrir neðan má sjá dagskránna en nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn.
8:00 - 8:30 Morgunverður
8:30 - 8:35 Setning - Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL
8:35 - 9:00 Yfirferð yfir helstu niðurstöður - Stefán Halldórsson, verkefnastjóri LL
9:00 - 9:30 Innlegg frá fulltrúum nokkurra hagaðila um núverandi stöðu og framtíðarþróun
9:30 - 10:00 Almennar umræður og fyrirspurnir
Fundarstjórn: Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur