Landssamtök lífeyrissjóða bjóða til veislu í tilefni 50 ára afmælis lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði í:
- Norðurljósasal Hörpu þriðjudaginn 28. maí kl. 16:30
- Hofi, Akureyri, fimmtudaginn 30. maí kl. 15:00
Leikararnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Valur Freyr Einarsson stýra viðburðunum, fara með gamanmál og taka lagið með Jóni Ólafssyni tónlistarmanni.
Stiklað verður á stóru - á léttum nótum - um fortíð og framtíð lífeyrissjóðanna.
Fagnaðu með okkur! Allir velkomnir!