Aukaútdráttur á húsbréfum.

Eins og kunnugt er hefur Íbúðalánasjóður samkvæmt lögum um húsnæðismál, nú nr. 44/1998, með síðari breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 76/1989, sem kom húsbréfakerfinu á fót.

Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Yfirlit um hin útdregnu bréf verður að finna í Morgunblaðinu og í Lögbirtingarblaðinu í dag, föstudaginn 15. október 2004. Við útdráttinn var farin sú leið, að draga út húsbréf flokk á móti flokki, á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera ráð.

Þeir flokkar húsbréfa sem dregnir voru út í þessum aukaútdrætti og eru með gjalddaga 15. desember 2004 eru eftirfarandi órafvæddir flokkar;

2.flokkur 95 (IBH200615) að nafnvirði: 492.220.000,

4.flokkur 94 (IBH190915) að nafnvirði: 443.630.000 og 4. flokkur 92 (IBH171215) að nafnvirði: 1.030.700.000.

Einnig var tilkynnt um að rafvæddir flokkar verði dregnir út í aukaútdrætti með gjalddaga 15. desember 2004. Tilkynnt verður um upphæðir aukaútdráttar viðkomandi flokka þann 10. desember 2004. Flokkarnir eru eftirfarandi: 1. flokkur 98(IBH221215), 2. flokkur 98(IBH371215), 1. flokkur 2001(IBH260315) og 2. flokkur 2001(IBH410315).