Í samantekt tölfræðisviðs Seðlabanka Íslands kemur fram að nettókaup erlendra verðbréfa voru samtals 33.469 m.kr. í janúar s.l. Kaupin í janúar eru þau mestu í einstökum mánuði síðan kerfisbundið var byrjað að safna saman upplýsingum um erlend verðbréfakaup árið 1994.
Mestu nettókaup í einstökum mánuðum:
Jan. 2006 33.469 m.kr.
Okt. 2005 27.974 m.kr.
Des. 2005 18.377 m.kr.
Apríl 2005 11.341 m.kr.
Ágúst 2005 11.320 m.kr.
Nóv. 2005 11.189 m.kr.