Annar áfangi þeirra breytinga sem gerðar voru á lögum um almannatryggingar um síðustu áramót tók gildi 1. júlí s.l. Markmið breytinganna er að bæta kjör ellilífeyrisþega og öryrkja. Misjafnt er hversu miklar breytingar verða á kjörum hvers og eins enda eru aðstæður lífeyrisþega mjög mismunandi. Meðal breytinganna er að sérstakt frítekjumark er tekið upp, 25 þús. kr. á mánuði, vegna örorkulífeyrisgreiðslna frá lífeyrissjóðum.
Breytingarnar sem tóku gildi 1. júlí 2008 eru:
Fyrsti áfangi breytinganna kom til framkvæmda 1. apríl s.l. og fólu í sér að:
Tryggingastofnun ríkisins mun í þessum mánuði senda nýjar greiðsluáætlanir til þeirra sem greiðslur breytast hjá vegna gildistöku annars áfanga lagabreytinganna.