Miklar sveiflur í viðskiptum með erlend verðbréf.

Í samantekt tölfræðisviðs Seðlabanka Íslands kemur fram að nettó kaup erlendra verðbréfa voru samtals  1.852 m.kr. í nóvember samanborið við nettó sölu  fyrir um 219 m.kr. í sama mánuði árið 2001. Miklar sveiflur eru þó innbyrðis milli mánaða varðandi kaup og sölu erlendra verðbréfa. Þannig var sala erlendra verðbréfa meiri en kaup í apríl og júnímánuði s.l. 

Þróun einstakra undirliða í nóvember var eftirfarandi:

  • Nettó kaup á hlutdeildarskírteinum í erlendum verðbréfasjóðum námu um 2.944 m.kr. en nettó sala í sama mánuði árið 2001 nam 808 m.kr.
  • Nettó sala á erlendum hlutabréfum nam 1.329 m.kr. en nettó kaup námu um 316 m.kr. í sama mánuði árið 2001.
  • Nettókaup skuldabréfa námu 237 m.kr en nettókaup námu 262 m.kr í sama mánuði árið 2001.

 Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu í nóvembermánuði og þannig hækkaði Dow Jones um 4,4%, S&P 500 um 3,9% og Nasdaq um 8,7%. Þrátt fyrir þessar hækkanir þá hefur aðeins lítill hluti lækkana síðustu missera gengið til baka.

 


Heimild: Seðlabanki Íslands, tölfræðisvið