Samkvæmt ársreikningi Lífeyrissjóðs Hf. Eimskipafélags Íslands nam raunávöxtun sjóðsins 6,42% á síðasta ári og meðaltal hreinnar raunávöxtunar s.l. fimm ár nam 4,49%. Hrein eign lífeyrissjóðsins nam 2.626 m.kr.
Lífeyrissjóðnum hefur verið lokað fyrir hefðbundnum iðgjalda-greiðslum. Eimskipafélag Íslands annast umsýslu lausafjár sjóðsins og sér um fjárfestingar fyrir hann samkvæmt sérstöku samkomulagi.
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins á árinu námu alls 147 millj. kr. sem svarar til 6,4% hækkunar frá fyrra ári. Lífeyrisþegar voru alls 236.
Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris nam 2.626 millj. kr. í árslok. Á árinu hækkaði hún um 64 millj. kr., eða um 2,5%.
Samkvæmt úttekt tryggingafræðings sjóðsins á áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga námu skuldbindingar deildar I í lífeyrissjóðnum 2.715 millj. kr. í árslok 2002. Hrein eign deildarinnar til greiðslu lífeyris þá dugði til að standa undir 96,5% af skuldbindingum hennar miðað við 3,5% ársvexti.
Samkvæmt úttekt tryggingafræðings á áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga í deild II í Lífeyrissjóðnum námu skuldbindingar deildarinnar 225,6 millj. kr. miðað við 3,5% ársvexti. Endurmetin hrein eign deildarinnar nægir því fyrir skuldbindingunni.