Óvenjumikil hækkun varð á eignum lífeyrissjóðanna í nóvember s.l. Eignirnar jukust úr 1.127 milljörðum kr. í lok október s.l. í 1.169 milljarða kr. í lok nóvember s.l. eða um 42.5 milljarða kr., sem er 3,8% aukning á einum mánuði. Frá ársbyrjun 2005 hafa eignir lífeyrissjóðanna aukist um 183 milljarða kr. til nóvemberloka s.l. eða um 18,5%. Til marks um þá miklu eignaaukningu sem varð í nóvember s.l. eða um 42,5 milljarða króna, má benda á að eignir sjóðanna jukust að meðaltali um 16.6 milljarða króna í hverjum mánuði síðasta árs til loka nóvember.
Líkur eru á því að eignir lífeyrissjóðanna verði um 1.200 milljarða króna í lok ársins 2005. Skýringin á þessari eignaaukningu má rekja til mikillar hækkunar á innlendum hlutabréfum, en einnig hafa erlendir verðbréfamarkaðir skilað drjúgum tekjum.
Þessar upplýsingar koma fram í efnahagsyfirliti lífeyrissjóða, sem Seðlabanki Íslands gefur út og er byggt á áætlun 22 stærstu lífeyrissjóðanna, sem í árslok 2004 áttu 94% af hreinni eign allra lífeyrissjóða.
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna námu í lok nóvember s.l. rúmlega 285 milljörðum króna eða um 24,4% af heildareignum sjóðanna. Þetta hlutfall nam um 22,1% í lok árs 2004.
Þá vekur athygli að sjóðfélagalánin námu alls 93,4 milljörðum kr. í lok nóvember og höfðu aukist um 6,6 milljarða kr. á árinu. 8% af eignum sjóðanna eru bundin í lánum til sjóðfélaga.
Sjá einnig meðfylgjandi upplýsingar úr efnahagsyfirliti lífeyrissjóða:
Eignaflokkar |
Árslok 2004 |
Nóvemberlok 2005 |
Breyting í % |
Útlán og verðbréfaeign |
950.328 m. kr. |
1.133.926 m. kr. |
19,3% |
Verðbréf með föstum tekjum |
524.326 m. kr. |
582.136 m. kr. |
11,0% |
Sjóðfélagalán |
86.826 m. kr. |
93.390 m. kr. |
7,6% |
Verðbréf með breytilegum tekjum |
426.002 m. kr. |
551.790 m. kr. |
29,5% |
Innlend hlutabréf |
127.905 m. kr. |
175.836 m. kr. |
37,5 % |
Erlend verðbréfaeign |
217.578 m. kr. |
285.431 m. kr. |
31,2% |
Hrein eign til greiðslu lífeyris |
986.535 m. kr. |
1.169.301 m.kr. |
18,5% |