Seðlabanki Íslands hefur gefið út tölur um eignir lífeyrissjóðanna í lok febrúar á þessu ári.
Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.614 milljarða króna í lok febrúar sl. og hafði lækkað um 8,2 ma.kr. í mánuðinum. Lækkunin frá áramótum nemur hins vegar rúmlega 33 milljörðum króna eða um 2%. Tólf mánaða aukning á eignum var 6,5% samanborið við 17% tólf mánaða tímabilið þar á undan. Aukning bankainnstæðna var 2,5 ma.kr. og verðbréfaeign lækkaði um 10,1 ma.kr. Í febrúar lækkaði innlend verðbréfaeign sjóðanna um 18.7 ma.kr í en erlend verðbréfaeign hækkaði um 8,6 ma.kr. Helsta ástæða fyrir lækkun eignanna má rekja til verulegrar lækkunar á innlendum hlutabréfum lífeyrissjóðanna, en lækkunin frá áramótum nam tæplega 42 milljörðum króna eða 17,5%. Lækkun á erlendri verðbréfaeign nam hins vegar aðeins 1,3% frá áramótum.
Eignaflokkar |
Árslok 2007 |
Febrúarlok 2008 |
Breyting í kr. |
Útlán og verðbréfaeign |
1.610.158 m.kr. |
1.573.437 m.kr. |
- 36.721 m.kr. |
Verðbréf með föstum tekjum |
784.423 m.kr |
793.475 m.kr |
9.052 m.kr. |
Sjóðfélagalán |
131.420 m.kr. |
132.434 m.kr. |
1.014 m.kr. |
Verðbréf með breytilegum tekjum |
825.734 m.kr. |
779.962 m.kr. |
- 45.772 m.kr. |
Innlend hlutabréf |
239.117 m.kr. |
197.222 m.kr. |
- 41.895 m.kr. |
Erlend verðbréfaeign |
456.723 m.kr. |
450.882 m.kr. |
- 5.841 m.kr. |
Hrein eign til greiðslu lífeyris |
1.647.134 m.kr. |
1.613.995 m.kr. |
- 33.139 m.kr. |
Sjá hér efnahagsyfirlit lífeyrissjóða í febrúarlok 2008