Samkvæmt efnahagsyfirliti Seðlabanka Íslands námu eignir lífeyrissjóðanna 677 milljörðum króna um síðustu áramót, sem er aukning um rúmlega 32 milljarða króna milli ára eða um 5%.
Tölfræðisvið Seðlabankans hefur tekið saman efnahagsyfirlit sjóðanna miðað við árslok 2002, sem byggist á úrtaki 25 stærstu lífeyrissjóðanna, sem áttu um 93% af hreinni eign allra lífeyrissjóða í árslok 2001.
Erlend verðbréfaeign sjóðanna nam rúmum 103 milljörðum króna í árslok 2002, sem er lækkun borið saman við árslok 2001 þegar erlenda eignin nam rúmum 134 milljörðum króna. Aukningin milli áranna 2000 og 2001 nam hins vegar tæpum 7 milljörðum króna eða um 5,2%. Erlend verðbréf í eigu lífeyrissjóðanna er nú um 15,3% af heildareignunum en var um 20,9% í árslok 2001 og um 22,6% í árslok 2000.
Húsbréfaeign sjóðanna nam um 199 milljörðum króna í árslok 2002, sem er aukning um rúm 18% milli ára. Sjóðfélagalán námu alls rúmlega 84 milljörðum króna sem er aukning um tæplega 13 milljarða króna milli ára eða rúmlega 18%.