Eignir lífeyrissjóða á heimsvísu rýrnuðu um 18% árið 2008

Erfitt efnahagsástand í heiminum á síðasta ári hafði í för með sér meira tap hjá lífeyrissjóðum  en þekkst hefur um margra ára skeið og féll heildarverðmæti eigna lífeyrissjóða um 18% árið 2008 samkvæmt rannsóknum International Financial Services London (IFSL).
Í skýrslu IFSL,  Pension Markets 2009, kemur fram að á árinu 2008 hafi verið neikvæð ávöxtun hjá lífeyrissjóðum í flestum löndum og að flestir eignaflokkar hafi fallið í verði. Meðalávöxtun hjá sjóðum í OECD löndum var samkvæmt  skýrslunni neikvæð um 19% fyrstu 10 mánuði ársins 2008.

Í skýrslunni kemur fram að hlutabréfaeign hafi átt þátt í halla í flestum löndum og er  tekið sérstaklega fram að fjárfestar hafi almennt ekki gert sér grein fyrir því,  þegar verið var að  dreifa áhættunni  með því að fjárfesta í verðbréfasjóðum, hversu mjög undirliggjandi eignir sjóðanna voru í hlutabréfum.  

Þá kemur fram að eignasöfn sem byggðu að stórum hluta á innlendum ríkistryggðum skuldabréfum hafi reynst best varin, en hlutabréf auk  skuldabréfa í fyrirtækjum hafi stuðlað að rýrnun eigna.

Tölurnar sýna að virði eigna lífeyrissjóða á heimsvísu féll frá því að vera 30,4 trm í lok árs 2007 í 25 trm í lok árs 2008. Stærstur hluti þessara eigna eða 64% var í Bandaríkjunum,  11% í Bretlandi,  5% í Kanada en síðan koma Holland, Ástralía og Japan, hvert land með 3%.

Rannsókn IFSL leiðir í ljós að í lok árs 2007 voru eignir lífeyrissjóða meiri en þjóðartekjur í Danmörku, BNA, Hollandi, Bretlandi, Ástralíu, Kanada og í Sviss.  Á sama tíma voru eignir lífeyrissjóða metnar 50 til 110% af vergri landsframleiðslu.

Í skýrslunni kemur fram að öll lönd sem tekin voru til skoðunar af OECD árið 2008 hafi sýnt neikvæða ávöxtun fyrstu 10 mánuði ársins 2008. Tapið reyndist mest á Írlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu og í Kanada þar sem ávöxtun var neikvæð um 20% á meðan tapið var minnst á Ítalíu 6% en Spánn og Þýskaland voru bæði með ávöxtun sem reyndist neikvæð um 7%.

Þróun eignasafna

Rannsóknin dregur einnig fram þróun eignasamsetningar síðustu árin í þeim fimm löndum sem ráðstafa mestum lífeyriseignum, Bandaríkjunum, Bretland, Holland, Japan og Ástralía.

Þar kemur fram að í kjölfar falls innlendra hlutabréfa í lífeyrissjóðasöfnum í Bretlandi hafi hlutabréfaeign fallið úr því að vera 67% árið 2003 í 56% árið 2007.  Í Bandaríkjunum, Ástralíu og Hollandi hefur hlutfall hlutabréfa verið stöðugt en það jókst í Japan á þessu tímabili úr 44% 2003 í 51% árið 2007.

Skuldabréfaeign í Japan féll á þessu tímabili úr 45% í 32% og er það fyrst og fremst rakið til rýrnunar á innlendum skuldabréfum. Á sama tíma drógst skuldabréfaeign í Bandaríkjunum einnig saman úr 34% í 30%.

Hið gagnstæða var uppi á teningnum í Bretlandi þar sem fjárfestingar í skuldabréfum tvöfölduðust á tímabilinu 2003 til 2007 úr 15% í 30% og í Hollandi varð einnig aukning úr 40% í 43% en fjárfestingar Ástrala voru stöðugar í 21%.

Tölurnar sýna að eignir í reiðufé, fasteignum og öðrum fjárfestingum var mismunandi milli landanna fimm.  Ástralía var með um 25% í öðrum fjárfestingum, þar á meðal 10% bæði í reiðufé og fasteignum. Japan var með 12% í eignum eins og vogunarsjóðum, framtakssjóðum og afleiðum en í Bretlandi voru 7% eigna í reiðufé og fasteignum.

Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að afkoma annars konar sjóða í óhefbundnum fjárfestingum (alternative funds) hafi versnað jafn mikið og af hlutabréfum árið 2008, séu vísbendingar um aukinn áhuga evrópskra og asískra lífeyrissjóða á óhefðbundnum eignum og þar hefur gull reynst  árangursríkast.

Í skýrslunni kemur einnig fram að mikil hlutabréfaeign í þessu fimm löndum endurspegla ekki ástandið í öðrum löndum OECD.  Þannig hafi skuldabréf verið meira en 50% heildareigna í lok árs 2007 í 10 löndum, þar á meðal í Noregi, Danmörku, Póllandi og á Spáni. Þá kemur fram í skýrslu IFSL að fjárfestingar í hlutabréfum séu innan við 10%  lífeyrissjóðseigna í sjö löndum þar á meðal í Belgíu, Tékklandi og Ítalíu.

Hér má nálgast skýrslu International Financial Services London (IFSL).

 

 

 

 

Meginmál]