Ríkisstjórnin, lífeyrissjóðir, fjármálastofnanir, vátryggingafélög og fjárfestingarsjóðir standa að sameiginlegri viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar sem birt var í dag í kjölfar undirritunarathafnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, undirritaði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og aðilar sem fara fyrir hátt í 80% af eignum á íslenskum fjármálamarkaði staðfestu þátttöku með undirritun sinni.
Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni,, Landssamtök lífeyrissjóða (LL), Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) og forsætisráðuneytið unnu að mótun yfirlýsingarinnar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði.
Í yfirlýsingunni segir að fjármagnið sé mikilvægt hreyfiafl í mótun atvinnulífs og atvinnusköpunar í uppbyggingunni framundan. Ákvarðanir og markvissar aðgerðir nú muni hafa mikil áhrif á þróun á næstu árum og mikilvægt sé að þar sé sjálfbærni leiðarljós. Jafnframt skuli efla samkeppnishæfni til framtíðar.
Tekið verður tillit til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands og þeirra viðmiða sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér. Þar má nefna markmið um kolefnishlutlaust Ísland eigi síðar en árið 2040, markmið Parísarsamkomulagsins um að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda þannig að hlýnun jarðar fari ekki yfir 1,5 gráður og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun 2030. Eftir atvikum er einnig litið til ESG/UFS, meginreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi (UN PRB), meginreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN PRI) og UN Global Compact.
„Samfélagslega ábyrg hugsun og sjálfbær þróun er rauður þráður í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Við viljum að stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir axli ábyrgð og hafi uppbyggileg áhrif á samfélagið. Til þess þarf að innleiða sjálfbærni og samfélagsábyrgð í allan rekstur. Sú hugmyndafræði mun skapa ný tækifæri og verða aflgjafi margháttaðra framfara.“
„Vandaðir stjórnarhættir, vel ígrundaður undirbúningur, gegnsæi og upplýsingamiðlun einkennir ábyrgar fjárfestingar í anda sjálfbærni og heilbrigðra samfélagsþátta. Allt er þetta í góðu samræmi við markaða stefnu og starfsemi íslenskra lífeyrissjóða.“
„Sameiginleg viljayfirlýsing fjölda lykilaðila á íslenskum fjármálamarkaði um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar, skiptir máli því hún setur þetta mikilvæga verkefni skýrar á dagskrá. Samstillt eru stjórnvöld og fjárfestar miklu betur í stakk búinn til að mæta þeim ógnunum og virkja þau tækifæri sem felast í áskorunum um að mæta ójafnvægi í sjálfbærri þróun.“
„Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð eru orðin hluti af viðskiptamódeli íslenskra fjármálafyrirtækja. Þannig er sjálfbærni í auknum mæli samofin starfsemi og stefnumótun fjármálafyrirtækjanna. Þá er jafnframt gleðilegt að sjá samkeppni á þessu sviði á milli einstaka fjármálastofnana, en það mun drífa þessa þróun áfram á næstu árum.“
„Viljayfirlýsingin felur í sér mikilvægt hreyfiafl og samtakamátt, sem ég tel vera til fyrirmyndar. Hún varpar ljósi á að við ætlum að hafa sjálfbærni sem leiðarljós í fjárfestingum, og það til langs tíma. Um allan heim er verið að taka ákvarðanir og endurskipuleggja fjármagn á þann hátt að það mun hafa áhrif á vaxtarlag, erindi og endingu fyrirtækja, kerfa og stofnana, svo ég tali nú ekki um líf á jörðinni langt inn í framtíðina."
Viljayfirlýsingin hefur verið undirrituð af eftirfarandi aðilum, en hún verður áfram opin fyrir undirritun þannig að fleiri geta bæst við:
Ríkisstjórn Íslands, Seðlabanki Íslands, Arion banki, Landsbankinn, Íslandsbanki, Kvika, Íslandssjóðir, Stefnir, Landsbréf, Sparisjóður Austurlands, Sparisjóður Höfðhverfinga, Sparisjóður Strandamanna, Sparisjóður Suður-Þingeyinga, TM, VÍS, Sjóvá, Vörður, Brú lífeyrissjóður, Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi- lífeyrissjóður, Íslenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands, Lífeyrissjóður bankamanna, Lífeyrissjóður bænda, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Lífsverk lífeyrissjóður, LSR, SL lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður, Arctica Finance hf., Lánasjóður sveitarfélaga ohf., Lykill fjármögnun hf., T Plús hf., Crowberry Capital, Eyrir Venture Capital, Brunnur, Tennin, Investa, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA).