Viðskipti með erlend verðbréf 8.259 m. kr. fyrstu fjóra mánuði þessa árs.

Í samantekt tölfræðisviðs Seðlabanka Íslands kemur fram að nettókaup erlendra verðbréfa voru samtals 1.316 m.kr. í apríl samanborið við nettó sölu  fyrir um 1.648 m.kr. í sama mánuði árið 2002.  Alls hafa heildarviðskiptin (nettó) numið 8.259 m.kr. fyrstu fjóra mánuði þessa árs.

 Þróun einstakra undirliða í apríl var eftirfarandi:

 Nettókaup á hlutdeildarskírteinum í erlendum verðbréfasjóðum námu 1.168 m.kr. en nettó sala í sama mánuði árið 2002 nam um 1.719 m.kr.

 Nettókaup á erlendum hlutabréfum námu 218 m.kr. en nettókaup í sama mánuði árið 2002 námu 127 m.kr.

 Nettósala skuldabréfa nam 62 m.kr en nettó sala nam 61 m.kr. í sama mánuði árið 2002.

 


Heimild: Seðlabanki Íslands, tölfræðisvið.