Vextir sjóðfélagalána lækkaðir í 4,9% hjá Framsýn.

Stjórn Framsýnar hefur tekið þá ákvörðun að lækka vexti af sjóðfélagalánum frá og með 1. september úr 5,4% í 4,9%.  Vextir á sjóðfélagalánum eru endurskoðaðir reglulega með tilliti til markaðaðstæðna.