Tæp 90% eigna Framtakssjóðs Íslands á markað á næstu þremur árum

Framtakssjóður Íslands áformar að tæplega 90% núverandi eignasafns sjóðsins verði skráð á hlutabréfamarkað innan þriggja ára. Þau fyrirtæki sem til stendur að skrá á markað eru SKÝRR, N1, Icelandic Group og Promens. Nú er hlutur sjóðsins í Icelandair eina skráða eign sjóðsins. Þessi umbreyting er í samræmi við stefnu Framtakssjóðsins um að taka þátt í endurreisn hlutabréfamarkaðar á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kom fram í erindi Finnboga Jónssonar, framkvæmdastjóra Framtakssjóðsins, á málþingi Deloitte, kauphallarinnar og Viðskiptaráðs um virkan hlutabréfamarkað á Íslandi í morgun. Þau félög sem til stendur að skrá hafa öll sterka stöðu, hvert á sínum markaði.

SKÝRR er í dag níunda stærsta upplýsingatæknifyrirtæki á Norðurlöndum, með starfsemi á Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Áætluð velta félagsins á yfirstandandi ári er um 24 milljarðar króna og hjá félaginu starfa um 1.100
manns, þar af um 600 á Íslandi.

Icelandic Group er leiðandi alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki. Í lok árs 2011, eftir að eignir félagsins í Bandaríkjunum og tengd starfsemi hafa verið seldar, er gert ráð fyrir að Icelandic Group reki starfsemi á Íslandi, í Evrópu og Asíu, áætluð heildarvelta
verði rúmlega 80 milljarðar króna og starfsmenn verði um 1.200 talsins.

N1 er leiðandi fyrirtæki á íslenskum eldsneytismarkaði með um 35-40% hlutdeild. Velta félagsins á árinu 2010 var um 46 milljarðar króna og er helmingur sölu annað en eldsneyti. Hjá félaginu starfa um 650 manns. Félagið hefur nýlega lokið við fjárhagslega endurskipulagningu og er rekstrargrundvöllur félagsins orðinn sterkur á ný.

Promens er leiðandi á heimsvísu í framleiðslu plastafurða og rekur 47 verksmiðjur Í Evrópu, Norður-Ameríku, Asíu og Afríku.
Lykilverksmiðjur eru á Dalvík og í Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi og Póllandi. Tekjur félagsins námu 560 milljónum evra á síðasta ári og EBITDA var um 50 milljónir evra. Um 4.200 manns starfa hjá fyrirtækinu.