Stjórnir Lífeyrissjóðs Austurlands og Lífeyrissjóðs Norðurlands hafa staðfest samrunasamning.

Samrunasamningurinn er með fyrirvara um samþykki ársfunda þeirra. Samkvæmt samningnum er gert ráð fyrir því að sjóðirnir verði sameinaðir miðað við stöðu þeirra í árslok 2006 og að samruninn verði endanlega staðfestur á ársfundum sjóðanna á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að ársfundirnir verði haldnir fyrir febrúarlok.

Markmið sameiningarinnar er að auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættudreifingu og ávöxtun eigna og hámarka með þeim hætti þau lífeyrisréttindi sem sameinaður sjóður getur veitt sjóðfélögum sínum.

 

Starfssvæði sjóðsins nær frá Hrútafirði í vestri Skeiðársandi í austri. Sjóðurinn nær þannig til allra byggðakjarna á Norður- og Austurlandi. Sjóðfélagar eru almennt launafólk á þessu svæði, sem kemur úr ýmsum atvinnugreinum, þ.m.t. sjávarútvegi, verslun, þjónustu, iðnaði ofl.

 

Sameinaður sjóður mun taka til starfa í byrjun mars á næsta ári gangi sameiningaráformin eftir. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á starfsstöðvum sjóðanna á Neskaupstað og Akureyri við sameininguna.

 

Sjóðfélagar í sameinuðum sjóði verða um 20 þúsund og lífeyrisþegar um 6 þúsund talsins. Eignir sameinaðs sjóðs verða ríflega 80 milljarðar króna og árlegar lífeyrisgreiðslur um 2 milljarðar króna.