Stigakerfi með jafnri réttindaávinnslu er stærst.

Í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um rekstur og efnahag lífeyrissjóðanna fyrir árið 2002 er birt yfirlit yfir réttindauppbyggingu sjóðanna. Stigakerfi með jafnri réttindaávinnslu er öflugast að krónutölu eða 64,5% af heild.

Heildareignir lífeyrissjóðanna voru taldar 678.930 m.kr. í lok síðasta árs. Réttindauppbygging sjóðanna var þessi um síðustu áramót í fjárhæðum:

Heildareignir í stigakerfi með jafnri réttindavinnslu, þ.e. óháð aldri sjóðfélaga nam 437.817 m.kr. eða 64,5% (68,8%) af heild. Tölur innan sviga sýna hlutfall í lok árs 2001. Stærsti sjóðurinn í þessum hópi er Lífeyrissjóður verzlunarmanna.

Heildareignir í aldursháðu stigakerfi, þ.e. iðgjöld gefa mismunandi réttindi eftir aldri sjóðfélagans, eru 51.252 m.kr. eða 7,5% (4,8%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóðurinn Lífiðn.

Heildareignir í hlutfallskerfi, þ.e. lífeyrir er ákveðinn hluti af launum, eru 139.989 m.kr. eða 20,6% (19,8%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild.

Í séreign námu heildarreignir um síðustu áramót 49.872 m.kr. eða 7,3% (6,6%) af heild. Þar er Frjálsi lífeyrissjóðurinn stærstur.