Starfsstöð opnuð fyrir fólk með geðraskanir.

Nú í vikunni var formlega í notkun í dag starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir í Bolholti 4, Reykjavík. Starfsstöðin verður starfrækt á vegum Heilsugæslunnar og Hugarafls og er fyrir fólk með geðraskanir sem veitt er þjónusta og þjálfun utan stofnana. Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi, er fyrir verkefninu.


Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tók formlega í notkun starfsstöð fyrir fólk með geðraskanir í Bolholti 4, Reykjavík. Þjónustan byggist á samstarfi fagfólks, þeirra sem þjónustuna fá og aðstandenda þeirra. Er við það miðað að nýta reynslu þessara aðila í því skyni að stuðla að bata og betri þjónustu við þá sem eru með geðraskanir. Eftirfylgni geðsjúkra/iðjuþjálfun er nú að hefja sitt þriðja starfsár. Verkefnið hófst sem tilraunaverkefni til tveggja ára en er nú að festa sig í sessi þriðja árið sökum góðs árangurs og eftirspurnar. Lögð hefur verið áhersla á - auðvelt aðgengi, - að einstaklingar leiti hennar á eigin forsendum, - að þróa þjónustuna í takt við þarfir notenda og aðstandenda. Markmiðið verkefnisins er að að efla möguleika á eftirfylgni utan stofnana gagnvart fólki með geðraskanir og aðstandenda þeirra. Miðað er að því að hægt sé að grípa inn í ferli sem gjarnan leiðir af sér óvirkni og færnisskerðingar og að efla með því fyrirbyggjandi þátt sem minnkar þörf á sjúkrahúsinnlögnum.


Sjá nánar ítarefni.