Raunávöxtun Lífeyrissjóðs Vesturlands 3,44% að meðaltali síðustu 5 árin.

Lífeyrissjóður Vesturlands hefur birt ársuppgjör vegna síðasta árs. Raunávöxtun sjóðsins var 0,15%. Hrein raunávöxtun þegar búið er að taka tillit til rekstrarkostnaðar er –0,02%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar fyrir árin 1998 til 2002 er 3,44%.

Lífeyrissjóður Vesturlands hefur birt ársuppgjör vegna síðasta árs. Raunávöxtun sjóðsins var 0,15%. Hrein raunávöxtun þegar búið er að taka tillit til rekstrarkostnaðar er –0,02%. Í árslok 2002 var hrein eign til greiðslu lífeyris tæpir 8,3 milljarðar en það er hækkun um 4,54% á milli ára. Innlendar eignir sjóðsins gáfu góða ávöxtun á árinu, þannig var nafnávöxtun innlendra hlutabréfa 22,8% og raunávöxtun 20,3%. Hinsvegar urðu miklar lækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum og það ásamt styrkingu krónunnar er meginskýring slakrar ávöxtunar sjóðsins á árinu. 

   Merki Lífeyrissjóðs Vesturlands

Iðgjöld ársins námu 485 milljónum, sem er 5,28% aukning frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur námu 283 milljónum, en það er 13,16% hækkun frá fyrra ári.

 Tryggingafræðileg úttekt í lok ársins 2002 sýnir að áfallnar skuldbindingar sjóðsins eru 3,4% umfram eignir. Heildarskuldbindingar umfram eignir eru hins vegar 6,4%. Þetta er heldur verri staða en á árinu 2001 en þá voru heildarskuldbindingar umfram eignir 2,2%. Við þessa úttekt var notast við nýja staðla um lífslíkur sem veikir tryggingafræðilega stöðu sjóðsins um tæp 2%. 

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar fyrir árin 1998 til 2002 er 3,44%.

 Ársfundur Lífeyrissjóðs Vesturlands verður haldinn 29. apríl n.k. kl. 17 að Hótel Glymi, Hvalfjarðarströnd.