Ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri FSÍ slhl.

Fréttatilkynning Framtakssjóðs Íslands slhl. er svohljóðandi: Brynjólfur Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Brynjólfur hefur viðamikla reynslu úr íslensku atvinnulífi en hann var forstjóri Símans og Skipta hf. 2002- 2010, forstjóri Granda hf. 1984-2002 og framkvæmdastjóri Almenna Bókafélagsins frá 1976-1983. Brynjólfur hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og samtaka. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk MBA prófi frá University of Minnesota árið 1973.

Þorkell Sigurlaugsson,
stjórnarformaður FSÍ:

„Það er mikill fengur að því að fá Brynjólf til að leiða þau verkefni sem framundan eru hjá Framtakssjóðnum. Hann hefur mikla reynslu af fyrirtækjarekstri og þekkingu á mörgum sviðum atvinnulífsins. Framtakssjóðurinn á nú eignarhluti í sjö fyrirtækjum og verkefnið framundan er að vinna með stjórnendum og starfsfólki þeirra að því að þróa starfsemi þeirra og rekstur ásamt því að skoða áhugaverð fjárfestingartækifæri sem falla að stefnu sjóðsins.“

Frekari upplýsingar

Þorkell Sigurlaugsson,  tsi@ru.is

Pétur Þ. Óskarsson, GSM 863 6075,  petur@framtakssjodur.is

 

Um Framtakssjóð Íslands slhf.

 Framtakssjóður Íslands er fjárfestingarsjóður í eigu sextán lífeyrissjóða, Landsbankans hf. og VÍS.
Sjóðurinn sérhæfir sig í fjárfestingum og viðskiptaþróun fyrirtækja. Hlutverk hans er að taka þátt í og móta endurreisn íslensks atvinnulífs og ávaxta fjármuni í samræmi við fjárfestingastefnu sjóðsins. Framtakssjóðurinn á eignarhluti í sjö fyrirtækjum. Stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands er Þorkell Sigurlaugsson.