Málþing um fjárfestingar lífeyrissjóða í atvinnulífinu

Landssamtök lífeyrissjóða efna til málþings um fjárfestingar lífeyrissjóða í atvinnulífinu undir yfirskriftinni, Lífeyrissjóðir, nýsköpun og hagvöxtur, föstudaginn 21. mars á Hilton Reykjavík Nordica, kl. 11:30 til 13:00. Framsögumaður á fundinum verður Frosti Sigurjónsson, alþingismaður og formaður efnahags- og viðskiptanefndar. Frosti hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og fjárfestingum í nýsköpun og vaxtarfyrirtækjum. Að lokinni framsögu verða umræður og fyrirspurnir.

Fundurinn er einkum ætlaður fyrir framkvæmdastjóra og starfsfólk eignastýringardeilda lífeyrissjóða.

Vinsamlega tilkynnið mætingu með því að senda póst á radstefna@ll.is