Lífeyrissjóður Vestmannaeyja: Réttindi sjóðfélaga skerðast ekki og staðan vel innan marka.

Heildarskuldbindingar sjóðsins eru 3,2% umfram hreina eign í árslok 2008 og er tryggingafræðileg staða hans því vel innan þeirra 10% marka sem lög setja.

Sjóðurinn mun ekki skerða áunninn réttindi eða lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga.

Nafnávöxtun sjóðsins var 2,79% á árinu og hrein raunávöxtun því -11,50% vegna 16,4% hækkunar neysluverðsvísitölunnar.  Meðaltal hreinnar raunávöxtunar sjóðsins sl. 5 ár er 4,69% og meðaltal síðustu 10 ár er 4,29%.

Hrein eign var í árslok 2008 um 24,4 milljarðar króna og óx um 990 milljónir á árinu eða um 4,24%.  Vegna falls viðskiptabankanna og fjármálakreppu voru skuldabréf fjármálafyrirtækja og nokkurra annarra fyrirtækja færð niður um 1,2 milljarða til að mæta fyirrsjáanlegum töpum.  Varúðarniðurfærslur þessar nema um 5,0% af hreinni eign í árslok.  Eignir sjóðsins í hlutabréfum bankanna urðu verðlausar við hrun þeirra í október 2008, en hlutabréfin voru metin á markaðsgengi í lok september á um 680 milljónir kr.

 

Óvissa ríkir um uppgjör gjaldmiðlavarnasamninga sem sjóðurinn gerði á árinu. Staða þeirra er metin í ársreikningi á gengi krónunnar eins og það var við bankahrunið í október sl.  Bankarnir urðu strax eftir fall þeirra ófærir um að sinna þessum gjaldmiðlasamningum en gjalddagar þeirra voru nálægt síðustu áramótum.

 

Skipting fjárfestinga var þannig í árslok, að með breytilegum tekjum (hlutabréf og hlutabréfasjóðir) voru 38,3% og með föstum tekjum (skuldabréf og bundin innlán) voru 61,7%.  Af fjárfestingunum voru 34% í erlendri mynt og 66% í íslenskum krónum.

 

Iðgjöld voru 890 milljónir, aukning um 17,35% á milli ára og lífeyrisgreiðslur voru 600 milljónir, aukning um 13,17%.

Afkoma séreignadeildar sjóðsins var í samræmi við markaðsaðstæður á árinu. Hrein eign deildarinnar var 206 milljónir í árslok og óx um 15,0% á árinu. Nafnávöxtun deildarinnar var 5,7% og raunávöxtun -9,3%.  Meðaltal raunávöxtunar deildarinnar sl. 10 ár er 4,8%.