Lífeyrissjóður Vestfirðinga þarf að lækka réttindin.

Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðina samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að  að lækka áunnin réttindi um 12%. Samt sem áður hafa áunnin réttindi sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Vestfirðinga verið hækkuð um 22,4% umfram hækkun vísitölu neysluverðs frá árinu 2002. Allur lífeyrir fylgir hækkun á vísitölu neysluverðs og hefur því hækkað um 18,8% frá 1. janúar 2008, sem er mun meira en laun á almennum vinnumarkaði hafa hækkað um á sama tíma.

Afkoma Lífeyrissjóðs Vestfirðinga árið 2008 var kynnt á fjölmennum ársfundi 21. maí sl. Helstu niðurstöður uppgjörsins eru þessar:

Nafnávöxtun  sjóðsins var neikvæð um 17,6%, raunávöxtun var neikvæð um 29,5%. 

Hrein eign til greiðslu lífeyris var 22,7 milljarðar króna og lækkaði um 4,7 milljarða eða  sem nemur  17,6%.
     
F
járfestingartekjur voru neikvæðar um 4,9 milljarða króna.

Meðalraunávöxtun sjóðsins sl. 5 ár er 0,1% og síðastliðin 10 ár 1,0% en áætluð meðalávöxtun allra lífeyrissjóða er 1,5% fyrir fimm ár og 2,2% fyrir 10 ár.

Skuldbindingar sjóðsins voru  15,3% hærri en eignir í lok árs 2008 samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt.

Á ársfundinum var ennfremur samþykkt að fjárframlag til Lífeyrissjóðs Vestfirðinga samkvæmt ákvæðum reglugerðar fjármálaráðherra nr. 1007/2008 samtals kr. 42.703.154 skuli nýtt til að hækka lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega sem fengu greiddan lífeyri á árinu 2008. Hver og einn lífeyrisþegi fær greiðslu sem nemur hlutfalli framangreindrar fjárhæðar eða 6,125% af greiddum lífeyri vegna ársins 2008. Þessi viðbótargreiðsla verði greidd út með 7 jöfnum greiðslum frá og með lífeyrisgreiðslum vegna júnímánaðar 2009. Ef lífeyrisgreiðslur hætta áður en 7 mánaða tímabilið er liðið eða er þegar hætt skal greiða það sem eftir stendur með eingreiðslu í lok greiðslutímabils.

Iðgjöld sjóðsins  á árinu 2008 voru 893 milljónir og höfðu hækkað um 10,4% á árinu.

Lífeyrisgreiðslur námu 661 milljón og hækkuðu um 13%

Eignir sjóðsins skiptast þannig í lok árs 2008 að 60% voru í innlendum skuldabréfum 3%  í innlendum hlutabréfum, 5% í innlánum og 32% í erlendum verðbréfum.

Alls greiddu 2976 einstaklingar iðgjöld til Lífeyrissjóðs Vestfirðinga árið 2008.

Fall íslensku viðskiptabankanna í október 2008 vó þar þyngst en í kjölfarið lentu mörg fyrirtæki í erfiðleikum. Erlendir hlutabréfamarkaðir voru óhagstæðir á árinu 2008 og lækkaði heimsvísitala hlutabréfa um 40,7%. Þróun á erlendum verðbréfamörkuðum, það sem af er árinu 2009, hefur einnig verið sjóðnum óhagstæð. Verðbréf hafa haldið áfram að lækka í verði á sama tíma og gengi erlendra gjaldmiðla hefur lækkað gagnvart íslensku krónunni. Ennþá ríkir milil óvissa á innlendum og erlendum mörkuðum.

Á ársfundinum var rætt ítarlega um afkomu sjóðsins og fundarmenn lýstu áhyggjum sínum af stöðu hans og stöðu á fjármálamörkuðum. Mikill einhugur ríkti hins vegar við afgreiðslu mála og voru allar tillögur, sem lagðar voru fyrir fundinn til afgreiðslu, samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða fulltrúa á fundinum, breytingar á samþykktum, tillaga um lækkun réttinda og varðandi stjórnarkjör.