Lífeyrissjóður Austurlands lækkar vexti í 4,3%.

Stjórn Lífeyrissjóðs Austurlands ákvað á stjórnarfundi í dag að lækka vexti af sjóðfélagalánum í 4,3 % frá og með 1. september.  Þessi lækkun gildir bæði fyrir ný lán sem og eldri lán sjóðfélaga.  Veðhlutfall er óbreytt eða 60% af matsverði fasteignar.  Allir sjóðfélagar sem einhvern tímann hafa greitt til sjóðsins eiga rétt á láni.