Lífeyrissjóðir aðilar að samkomulagi um samþykki síðari veðhafa gengistryggðra fasteignalána.

Aðilar á íbúðalánamarkaði þ.e. Landssamtök lífeyrissjóða, Íbúðalánasjóður, Samtök fjármálafyrirtækja og skilanefnd SPRON undirrituðu í síðustu viku samkomulag, þar sem lífeyrissjóðir og fjármálafyrirtæki á íbúðalánamarkaði auk Íbúðalánasjóðs, samþykkja fyrirfram sem síðari veðhafar, skilmálabreytingar vegna lána sem framar eru í veðröð og varða breytinga á skilmálum verðskuldabréfs vegna greiðslujöfnunar, sbr samkomulag um beitingu greiðslujöfnunar gengistryggðra faseignaveðlána, sem undirritað var 8. apríl s.l.

Markmið þess samkomulags er að lækka greiðslubyrði á myntkörfulánum þannig að lántekendur geti staðið í skilum, án þess þó að grípa til afskrifta úr bankakerfinu og/eða verulegs kostnaðar úr ríkissjóði. Þetta eru svipuð úrræði og eru í boði fyrir lántakendur verðtryggðra fasteignalána og því sanngirni gætt á milli lántakenda eins og kostur er, en þó er tekið sérstakt tillit til óvenjulegra aðstæðna gengistryggðra lána.

Samkvæmt samkomulaginu skulu lánveitendur gengistryggðra fasteignaveðlána bjóða lántökum upp á greiðslujöfnun. Með greiðslujöfnun er greiðslubyrði af gengistryggðum lánum látin fylgja þróun tekna og atvinnustigs (þ.e. greiðsla tekur mið af breytingu á greiðslujöfnunarvísitölu Hagstofu Íslands í hverjum mánuði) í stað gengis gjaldmiðla.

Lántaki gerir samning við lánveitanda um að greiða af gengistryggðu veðláni miðað við framreiknað greiðslumark, sem miðast við afborgun af höfuðstól og vexti sbr. greiðslubyrði lántaka eins og hún var 2. maí 2008 (hafi lánið verið tekið fyrir þann tíma en hafi lánið verið tekið eftir 2. maí 2008 miðast greiðslumarkið við fyrsta reglulega gjalddaga eftir lántöku).

Mismunur þess sem lántaki greiðir samkvæmt greiðslujöfnun og þess sem hann hefði átt að greiða samkvæmt láninu færist til hækkunar á höfuðstól skuldarinnar og við bætast gjalddagar á upprunalegt lán og lengja þannig lánstímann.

Skilmálabreyting láns vegna greiðslujöfnunar skal vera lántaka að kostnaðarlausu. Samkomulagið hindrar ekki að fjármálafyrirtæki geti veitt viðskiptavinum sínum frekari greiðsluerfiðleikaúrræði og kemur greiðslujöfnun þessi, eftir atvikum, til viðbótar öðrum greiðsluerfiðleikaúrræðum sem lántaki kann að eiga rétt á lögum samkvæmt. Lántaki getur hvenær sem er sagt upp samningi um greiðslujöfnun.

Gildistími samkomulagsins er til ársloka árið 2012. Yfirlýsing um samþykki síðari veðhafa gildir einnig til ársloka 2012.

Samkomulag um samþykki síðari veðhafa 

Samkomulag um greiðslujöfnun gengistryggðra fasteignaveðlána.