Hrein raunávöxtun Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda 9,8% árið 2003

Heildareignir til greiðslu lífeyris í árslok 2003 hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda námu alls 28.202 millj.,kr. Jukust þær um 4,335 millj., kr. eða 18,2% frá árinu á undan. Nafnávöxtun samtryggingardeildar var 2003 13% eða 10% raunávöxtun. Hrein raunávöxtun 2003 var 9,8%. Fimm ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar sjóðsins var í árlok 2003 3,8%. Tíu ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar var í árslok 2002 5,8%. Ávöxtun sjóðsins hefur aldrei verið neikvæð.

 

Nafnávöxtun innlendra hlutabréfa var mjög góð eða 52,8%. Erlendar eignir hækkuð einnig mikið og var nafnávöxtun þeirra 20,7%. Nafnávöxtun skuldabréfa var 8,7%. Almennt skiluð allar eignir sjóðsins betri ávöxtun en viðmið s.s. hlutabréfavísitölur. Iðgjöld ársins námu 1.514 millj.,kr. sem er 11,6% aukning frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur námu 308 millj.kr. og uxu um 12,3% frá árinu á undan. Tryggingafræðileg staða sýnir að eignir umfram áfallnar skuldbindingar námu 21,5% í árslok 2003. Heildarskuldbinding umfram eignir er hins vegar 6,9%. Staða sjóðsins í heild er því neikvæð sem nemur 3.494 millj., kr í árlok 2003. Rekstur séreignardeildar sjóðsins gekk vel og var ávöxtun eigna 13,5%. Hrein raunávöxtun var 10,5%. Eignir séreignardeildar sjóðsins uxu mikið milli ára og fjöldi rétthafa hefur einnig aukist. Rétthafar voru í árslok 3.497.

 Ársfundur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda verður haldinn þriðjudaginn 25. maí n.k. kl. 16.00 á Skúlagötu 17 2. hæð.