Góð ávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins.

Íslenski lífeyrissjóðurinn skilaði góðri ávöxtun til sjóðfélaga sinna árið 2007. Nafnávöxtun ávöxtunarleiða var á bilinu 7,7% til 14,0% sem var vel yfir viðmið á þeim mörkuðum sem sjóðurinn fjárfestir.

Ávöxtunarleið

2007*

sl. 3 ár.

sl. 5 ár.

Líf I

8,1%

 14,3%

14,8%

Líf II

7,9%

 13,3%

13,4%

Líf III

9,4%

 11,1%

11,2%

Líf IV**

14,0%

 11,1%

9,8%

Samtrygging

7,7%

 13,7%

12,9%


*Óendurskoðaðar tölur.
**Fram til 30/06/07 byggir ávöxtun á óverðtryggðri lífeyrisbók (Líf IV verðtryggð) en frá 01/07/07 byggir hún á nýrri fjárfestingarstefnu fyrir Líf I sem er varfærin skuldabréfaleið og innlán.

 

Árið 2007 byrjaði með hækkunum á hlutabréfamörkuðum en þróunin snéri svo við þegar líða tók á árið. Traust fjárfestingarstefna sjóðsins og virk stýring skilaði viðskiptavinum á hinn bóginn mun
betri árangri en ella þar sem vel tókst að bregðast við lækkunum á einstökum eignaflokkum og
auka áherslu á varfærnari fjárfestingarkosti sem gáfu betri ávöxtun.  Sjóðurinn er með rekstrarsamning við Landsbankann sem annast m.a. eignastýringu sjóðsins.

 

Íslenski lífeyrissjóðurinn byggir á fjórum fjárfestingarleiðum sem taka mið af aldri sjóðfélaga og þar með væntum fjárfestingartíma. Þannig vegur hlutfall hlutabréfa mest í Líf I, minna í Líf II og Líf III
en Líf IV er varfærin skuldabréfaleið. Samtryggingardeild sjóðsins fylgir sömu fjárfestingarstefnu
og Líf II. Af meðfylgjandi tölum, í töflunni hér að framan, um ávöxtun 2007, sl. þriggja ára og sl. fimm ára sést að ávöxtun sjóðsins hefur verið góð til lengri og skemmri tíma og í samræmi við markmið fjárfestingarstefnu einstakra leiða.