Fyrsta sinn dæmt fyrir brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrissjóða.

Í dag gekk dómur í máli efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans á hendur þremur mönnum. Tveir mannanna voru sakfelldir en einn sýknaður. Þeir tveir dæmdu voru sakfelldir annar fyrir umboðssvik, brot gegn lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og hlaut hann 12 mánaða skilorðsbundin dóm en hinn fyrir peningaþvætti og hlaut hann 3 mánaða skilorðsbundinn dóm. Auk þess sem dæmdu var gert að greiða skaðabætur og þola upptöku ólögmæts ávinnings.

Annar maðurinn var fyrrum sjóðsstjóri hjá Kaupþingi hf. og annaðist sjóðsstýringu fyrir nokkra viðskiptavini Kaupþings hf. þar á meðal Lífeyrissjóð Austurlands sem bankinn hafði yfirtekið reksturinn á um mitt ár 2000. Brot sjóðstjórans fólust í að hann keypti hlutabréf í 4 skipti í skráðum jafnt sem óskráðum hlutafélögum í flestum tilfellum í nafni vinar síns en einu tilfelli í nafni bróður síns. Síðan lét hann sjóði sem hann fór með eignastýringu fyrir kaupa sömu hlutabréf, oftast samdægurs, eftir að hafa bætt ofan á gengið sem nam u.þ.b. 15 – 30 %. Auk þessa seldi ákærði í eitt skipti hlutabréf í Íslandssíma í eigu Lífeyrissjóðs Austurlands til vinar síns á 30% lægra verði, en sem nam markaðsgengi sem hann fékk fyrir bréfin þegar seldi þau aftur samdægurs og hirti sjálfur mismuninn. Samanlagt nam ávinningur dæmda rúmum kr. 4,4 milljónum. Dæmda var gert að greiða Kaupþingi Búnaðarbanka hf. skaðabætur sem nam tjóni sjóðanna sem bankinn hafði orðið að bæta þeim. 

Auk þess að hafa með framangreindri hegðun gerst sekur um umboðssvik samkvæmt. 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, var sjóðstjórinn dæmdur fyrir brot gegn lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129, 1997. En í 36. gr. laganna frá 1997, er lagt bann við því að lífeyrissjóðir fjárfesti í óskráðum verðbréfum umfram 10% af heildareignum sjóðsins.

Athyglisvert er að þetta er í fyrsta skipti sem maður er ákærður og dæmdur fyrir brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Auk þess sem dómurinn telur að þrátt fyrir að ekki hafi legið fyrir á þeim tíma sem brot var framið hver eign sjóðsins var í óskráðum bréfum, geti dæmdi ekki borið það fyrir sig. Dómurinn geymir skýr skilaboð til þeirra sem gegna ábyrgðarstöðum eins og dæmdi um að þeir kunni að sæta refsiábyrgð láti þeir lífeyrissjóði sem þeim hefur verið treyst fyrir fjárfesta umfram 10% markið. Dómurinn telur að dæmdi geti ekki borið fyrir sig að upplýsingar hafi skort, og má skilja dóminn svo að hér sé um að ræða undantekningarreglu sem beri að skýra þröngt þannig að einungis sé heimilt að kaupa óskráð bréf fyrir lífeyrissjóði, að fyrirliggjandi sé að eign þeirra í óskráðum bréfum sé örugglega ekki komin upp fyrir 10% af heildareign.

Annað sem er athyglisvert við dóminn er að ákærði er dæmdur fyrir markaðsmisnotkun en þetta er í fyrsta skipti sem ákært og dæmt er fyrir slíkt brot á Íslandi.  Dæmdi framdi brotin með því að gera í tengslum við tvö af framangreindum brotum tilboð inn í kauphöll um kaup í nafni sjóða sem honum var treyst fyrir þar sem hann bauð hærra en markaðsvirði í því skyni að “hífa verðið upp” eins og dæmdi lýsti því sjálfur. Slík hegðun er lýst refsiverð samkvæmt núgildandi lögum nr. 33, 2003 um verðbréfaviðskipti og eldri lögum nr. 13, 1996 um sama efni. Enda er slík hegðun til þess fallin að búa til verð á hlutabréfum sem ekki á sér stoð í eðlilegum viðmiðum s.s. gengi félags, framboði og eftirspurn á markaði, væntingum um framtíðar afkomu o.s.f. Auk þess sem þetta veldur hættu á tjóni fyrir þá sem kaupa bréfin á þeim tíma sem verð þeirra er uppi og slík hegðun er til þess fallin að grafa undan tiltrú fjárfest á markaðnum svo einhver dæmi séu nefnd. 

 

Sjá nánar heimasíðu Ríkislögreglustjóra.