Arnaldur Loftsson framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins tekur við verðlaununum sem besti lífeyrissjóðurinn í sínum stærðarflokki.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hlaut tvenn verðlaun í verðlaunasamkeppni lífeyrissjóða sem haldin var af fagtímaritinu Investment Pension Europe (IPE) nýverið. Sjóðurinn var valinn besti lífeyrissjóður i Evrópu í sínum stærðarflokki en miðað er við sjóði sem eru minni en einn milljarður evra að stærð (153 milljarðar króna). Jafnframt var sjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður Evrópulanda med færri en eina milljón íbúa annað árið í röð og tilnefndur til verðlauna í tveimur öðrum flokkum. Er þetta besti árangur sem sjóðurinn hefur náð í IPE verðlaunasamkeppninni.
Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram að
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, sem er í rekstri hjá Arion banka, er um 140 milljarðar að stærð og sjóðfélagar eru um 50 þúsund talsins. Sjóðurinn hentar þeim sem hafa frjálst val um í hvaða lífeyrissjóð þeir greiða 12% skylduiðgjald og hentar jafnframt þeim sem leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað.
IPE er eitt virtasta fagtímarit Evrópu um lífeyrismál. Árlega veitir tímaritið þeim lífeyrissjóðum verðlaun sem að mati dómnefndar IPE hafa skarað fram úr í sínu heimalandi og í Evrópu. Danski lífeyrissjóðurinn Pension Danmark var valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu að þessu sinni.