Friðbert Traustason kosinn formaður Landssamtaka lífeyrissjóða.

Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða var haldinn í dag. Að loknum aðalfundi skipti stjórnin með sér verkum og  var Friðbert Traustason, formaður Sambands íslenskra bankamanna og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði bankamanna kosinn formaður  í stað Þóris Hermannssonar frá Lífeyrissjóðnum Lífiðn. Þórir sem hefur verið formaður frá stofnun samtakanna eða í tæp fjögur og hálft ár  gaf  ekki lengur kost  sér til formennsku.  Nánar verður sagt  frá aðalfundinum síðar.