Framúrskarandi ávöxtun innlendu hlutabréfanna hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Í grein sem Þorgeir Eyjólfsson forstjóri LV skrifar í Morgunblaðið í dag kemur fram að umframávöxtun sjóðsins á innlendum hlutabréfamarkaði síðustu 9 árin hefur safnast upp í 90,4% miðað við Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar.

Það er hreint ótrúlegur árangur sem á sér vart hliðstæðu. Ýmsar aðrar áhugaverðar upplýsingar koma fram í grein forstjórans, sem hægt er að nálgast hér: Grein Þorgeirs Eyjólfssonar.