Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála og fasteignareksturs í Háskólanum í Reykjavík, er nýr formaður stjórnar Framtakssjóðs Íslands. Hann tók við af Ágústi Einarssyni prófessor á stjórnarfundi í kjölfar aðalfundar sjóðsins í dag. Stjórn Framtakssjóðs var endurkjörin að öðru leyti en því að Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri Össurar, bættist í hópinn í stað Ágústs Einarssonar.
Ágúst hefur verið stjórnarformaður frá því Framtakssjóður Íslands (FSÍ) var stofnaður af sextán lífeyrissjóðum í desember 2009. Hann gaf þá vilyrði fyrir því að sitja í stjórninni í tvö til þrjú ár eða þar til sæi fyrir enda uppbyggingarskeiðs í starfseminni. Á dögunum tilkynnti hann Arnari Sigurmundssyni, stjórnarformanni Landssamtaka lífeyrissjóða, að stjórnarseta sín myndi hins vegar ekki vara nema í liðlega hálft annað ár vegna þess að hann teldi uppbyggingarskeiðinu vera lokið og hlutverki sínu þar með. Ágúst reifaði þessa niðurstöðu sína frekar á aðalfundinum í dag. Arnar Sigurmundsson, sem var fundarstjóri á aðalfundi Framtakssjóðsins, þakkaði honum afar vel unnin störf og kvaðst jafnframt hafa lagt að Ágústi að sitja í stjórnini eitt ár enn en án árangurs!
Nýr stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, Þorkell Sigurlaugsson, er viðskiptafræðingur að mennt og þrautreyndur í viðskiptalífinu. Hann starfaði lengi sem framkvæmdastjóri Eimskips og síðar sem framkvæmdastjóri Burðaráss, fjárfestingarfélags Eimskips, áður en leiðin lá til Háskólans í Reykjavík. Hann hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og skrifað bækur um stjórnun í atvinnurekstri og fleira því tengt.
Auk Þorkels og Hjörleifs Pálssonar sitja í stjórn Framtakssjóðs Íslands Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs VÍS, Baldur Þór Vilhjálmsson, forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins - LSR, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri eignastýringar Landsbanka Íslands, Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármögnunar og fjárstýringar hjá Marel.
Arnar Sigurmundsson, formaður LL og Ágúst Einarsson, fyrrverandi formaður FSÍ.