FME: Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðanna versnar.

Vegna áfalla á fjármálamörkuðum sl. haust ákvað Fjármálaeftirlitið að flýta skýrsluskilum á tryggingafræðilegum athugunum lífeyrisjóða. Skiladagur var ákveðinn 1. mars fyrir sjóði án ábyrgðar og 1. apríl fyrir sjóði með ábyrgð launagreiðenda. Fyrrnefndir sjóðir hafa nú skilað skýrslum um tryggingafræðilega stöðu miðað við stöðuna í árslok 2008. Bráðbirgða niðurstöður sýna að staðan hefur versnað verulega frá árinu áður og eru aðeins 3 sjóðir með jákvæða tryggingafræðilega stöðu samanborið við 20 sjóði við árslok 2007.  Um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem m.a. fólu í sér tímabundna breytingu á að ekki  væri nauðsynlegt að skerða réttindi við neikvæða tryggingafræðilega stöðu ef hún væri innan við 15% en áður var viðmiðið -10%. Samkvæmt bráðbirgðaniðurstöðum þurfa væntanlega 5 sjóðir að skerða réttindi sjóðfélaga.

Samkvæmt niðurstöðum innsendra skýrslna sýna allir áðurnefndir sjóðir neikvæða raunávöxtun fyrir árið 2008 en þó mismunandi eftir sjóðum. Vegið meðaltal neikvæðrar raunávöxtunar er nálægt -21,5%.