Flatskjár og utanlandsferð fyrir séreignarsparnaðinn

Meirihluti Dana, sem fær greiddan út séreignarsparnað á næstu mánuðum, ætlar að nota peningana til að einkaneyslu af einhverju tagi, til dæmis kaupa utanlandsferð, flatskjá fyrir heimilið. Aðrir ætla að ávaxta fjármunina áfram í lífeyriskerfinu eða taka út peningana og ávaxta þá sjálfir í bankakerfinu.
Þetta er niðurstaða könnunar á vegum danska lífeyrissjóðsins ATP í tilefni af því að 1,9 milljónir Dana munu til áramóta taka út alls 25 milljarða danskra króna af sérstökum séreignarsparnaðarreikningum í samræmi við lög sem þjóðþing Danmerkur samþykkir að líkindum 19. maí næstkomandi að frumkvæði ríkisstjórnarinnar.

Markmiðið með lagabreytingunni er að losa um fjármuni í þessum hluta lífeyriskerfisins til að eigendur þeirra geti betur staðið af sér þrengingar í efnahagskreppunni og til að örva hagvöxt með því að auka neyslu í samfélaginu. Ferðaskrifstofur í Danmörku hafa tekið við sér og auglýsa sumarleyfisferðir sem hægt er að greiða með séreignarsparnaði viðkomandi um leið og fjármunirnir liggja á lausu!

Þessi tiltekni séreignarsparnaður varð til á árunum 1998-2003 þegar Dönum var gert að greiða 1% af brúttólaunum sínum inn á slíka reikninga. Inngreiðslurnar voru aflagðar 2004 og síðan þá hafa fjármunirnir verið ávaxtaðir. Í sjóðunum eru nú samtals um 40 milljarðar danskra króna í eigu 2,9 milljóna manna. Þegar á heildina er litið er þetta lítill hluti lífeyrissparnaðar Dana. Meira en helmingur eigenda séreignarsparnaðarins á innan við 15.000 danskar krónur á reikningi sínum og innan við 7% eiga yfir 25.000 danskar krónur hver.

Byggt á fréttabréfi ATP, faktun nr. 68 árið 2009