Fjármálaeftirlitið birtir yfirlit yfir lífeyriskerfi sjóðanna.

Í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um rekstur og efnahag lífeyrissjóðanna fyrir árið 2001 er birt yfirlit yfir réttindauppbyggingu sjóðanna. Stigakerfi með jafnri réttindaávinnslu er öflugast að krónutölu eða 68,8% af heild.

Heildareignir lífeyrissjóðanna voru taldar 644.756 m.kr. í lok síðasta árs. Réttindauppbygging sjóðanna var þessi um síðustu áramót í fjárhæðum: Heildareignir í stigakerfi með jafnri réttindavinnslu, þ.e. óháð aldri sjóðfélaga nam 443.628 m.kr. eða 68,8% (70,9%) af heild. Tölur innan sviga sýna hlutfall í lok árs 2000. Stærsti sjóðurinn í þessum hópi er Lífeyrissjóður verzlunarmanna. Heildareignir í aldursháðu stigakerfi, þ.e. iðgjöld gefa mismunandi réttindi eftir aldri sjóðfélagans, eru 30.600 m.kr. eða 4,8% (4,5%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóður lækna. Heildareignir í hlutfallskerfi, þ.e. lífeyrir er ákveðinn hluti af launum, eru 127.735 m.kr. eða 19,8% (18,4%) af heild. Stærsti sjóðurinn í því kerfi er Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, B-deild. Í séreign námu heildarreignir um síðustu áramót 42.793 m.kr. eða 6,6% (6,2%) af heild. Þar er Almennur lífeyrissjóður VÍB stærstur.