Festa lífeyrissjóður með mjög góða raunávöxtun í fyrra og réttindin aukin.

Á miðju ári 2006, sameinuðust Lífeyrissjóður Suðurlands og Vesturlands og hlaut hinn sameinaði sjóður nafnið Festa lífeyrissjóður.  Raunávöxtun Festu lífeyrissjóðs var 11,3% á árinu 2006. Í árslok 2006 var hrein eign til greiðslu lífeyris rúmir 48,6 milljarðar og hækkaði hún um 23,4% á milli ára.  

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ára er 6,6% og er þá ávöxtun beggja sjóða hlutfölluð miðað við hreina eign sjóðanna í lok hvers árs. Stjórn sjóðsins mun leggja til við aðalfund að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði aukin um 4% frá og með 1. janúar 2007. 

Ávöxtun séreignardeildar sjóðsins var einnig góð, eða 15,9%, sem jafngildir 8,4% raunávöxtun.

Góðri afkomu ársins 2006 má fyrst og fremst þakka hagstæðum skilyrðum á verðbréfamörkuðum, bæði innanlands sem utan. Þannig hækkaði Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands um 15,8% og erlend hlutabréf um 17,8% í erlendri mynt, en sökum mikillar veikingar krónu gagnvart helstu myntum, hækkaði heimsvísitala hlutabréfa um 32,8%.

Í árslok 2006 voru 52% fjárfestinga með breytilegum tekjum (hlutabréf og sjóðir), 47% með föstum tekjum (skuldabréf) og 1% í bundnum innlánum. Rúm 30% fjárfestinga var í erlendri mynt. Iðgjöld ársins námu 2.814 milljónum, sem er 20,1% aukning frá fyrra ári. Lífeyrisgreiðslur námu 1.168 milljónum, en það er 2,4% hækkun frá fyrra ári.

Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt sem miðast við stöðu sjóðsins í lok árs 2006 eru eignir sjóðsins 6,4% umfram heildarskuldbindingar. Stjórn sjóðsins mun leggja til við aðalfund að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði aukin um 4% frá og með 1. Janúar 2007. Þrátt fyrir þessa hækkun réttinda mun staða sjóðsins verða jákvæð um 4,4% eða rúma 4 milljarða.