Festa lífeyrissjóður: Erfitt ár að baki.

Stjórn Festu lífeyrissjóðs hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2008. Samkvæmt niðurstöðu ársreiknings var nafnávöxtun tryggingadeildar sjóðsins neikvæð um 5,6%. Verðbólga á árinu 2008 var 16,4% og því er hrein raunávöxtun deildarinnar neikvæð um 18,8%.

Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt sem miðast við stöðu sjóðsins í lok árs 2008, eru eignir sjóðsins lægri en skuldbindingar sem nemur 8% af heildarskuldbindingum. Þessi staða er innan þeirra marka sem lög og reglur segja til um og er stjórn sjóðsins því ekki skylt að leggja til skerðingu réttinda. Hins vegar hefur þróun á innlendum og erlendum mörkuðum verið sjóðnum óhagstæð það sem af er ári. Stjórn sjóðsins hefur því ákveðið að fresta ákvörðun um hvort réttindi sjóðfélaga haldist óbreytt til næsta fundar í apríl. 

Í árslok 2008 var hrein eign til greiðslu lífeyris um 54,6 milljarðar og lækkaði hún um 0,7 milljarða, eða 1,3% á milli ára. Iðgjöld ársins námu tæpum 3,8 milljörðum, sem er  6,5% aukning frá fyrra ári. Til sjóðsins greiddu á árinu tæplega 16 þúsund sjóðfélagar hjá 1.848 launagreiðendum. Lífeyrisgreiðslur námu 1.5 milljörðum, en það er rúm 14% hækkun frá fyrra ári. Lífeyrisþegar voru 4.830.

 

Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ára er 1,41% og er þá ávöxtun þeirra sjóða sem að Festu lífeyrissjóði standa, hlutfölluð m.v. hreina eign þeirra í lok áranna 2004-2005. Meðaltal raunávöxtunar síðustu 10 ára er 1,82%.

 

Við fall bankanna urðu hlutabréf og víkjandi skuldabréf þeirra verðlaus og mikil óvissa ríkir um verðmæti annarra skuldabréfa sem þeir gáfu út og eru í eigu sjóðsins. Í ársreikningi eru færðar varúðarfærslur þar sem þessi skuldabréf eru afskrifuð að mestu leyti. Í eigu sjóðsins eru einnig hlutabréf, stofnfjárbréf og skuldabréf annarra lánastofnanna og fyrirtækja sem sum hver standa höllum fæti í kjölfar fjármálakreppunnar. Einnig hafa verið færðar varúðarfærslur vegna þessara eigna. Í heild námu varúðarfærslur sjóðsins um 12% af hreinni eign.

 

Rekstrarkostnaður sjóðsins var 0,12% af meðaltali hreinnar eignar í upphafi og lok árs og helst óbreyttur milli ára.

 

Nafnávöxtun séreignardeildar sjóðsins var 0,0%, sem jafngildir -14,1% raunávöxtun. Eignir séreignardeildar eru allar gerðar upp á markaðskröfu. Hrein eign séreignardeildar var 149,4 milljónir í árslok og hækkaði um 14,4% milli ára.

 

Í árslok 2008 voru 39% fjárfestinga sjóðsins með breytilegum tekjum (hlutabréf og sjóðir). Þar af vega ríkisskuldabréfasjóðir rúman fjórðung (11% af heildarfjárfestingum). Fjárfestingar með föstum tekjum (skuldabréf og bundin innlán) námu 61%. Rúm 25% fjárfestinga var í erlendri mynt.

 

Meginmál]