Félagsmálaráðherra skerpir á heimildum Íbúðalánasjóðs til áhættustýringar og ávöxtunar lausafjár.

Félagsmálaráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs, að fengnum umsögnum Fjármálaeftirlitsins og stjórnar Íbúðalánasjóðs. Þannig hefur verið skerpt á heimild Íbúðalánasjóðs til áhættustýringar og ávöxtunar lausafjár.

Íbúðalánasjóður skal beita hefðbundnum áhættustýringaraðferðum til að tryggja vandaða áhættu- og fjárstýringu og jafnvægi í inn- og útgreiðslum sjóðsins sem nánar eru útfærðar í áhættustýringarstefnu. Í því skyni er Íbúðalánasjóði heimilt að ávaxta handbært fé á bankareikningum, með viðskiptum með verðbréf eða með öðrum viðurkenndum fjárfestingaleiðum til skemmri eða lengri tíma.

Til annarra viðurkenndra fjárfestingarleiða skv. 1. mgr. teljast meðal annars kaup á fjármálagerningum eða skuldarviðurkenningum útgefnum af mótaðilum skv. A–E-flokki hér á eftir eða hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum sem fjárfesta í verðbréfum útgefnum af þeim.

Einnig samningar um kaup á fasteignaveðbréfum skv. F-flokki eða vaxtaberandi eignum sem byggja á greiðsluflæði frá slíkum bréfum.

Flokkar mótaðila og eigna eru:

A. Ríkissjóður Íslands eða ríkisstofnanir.

B. Lánastofnanir með fjárfestingarlánshæfismat sem er að minnsta kosti BBB frá Moody’s eða sambærilegt frá öðrum matsfyrirtækjum.

C. Fyrirtæki í OECD-ríkjum með langtímalánshæfismat sem er að minnsta kosti A1 frá Moody’s eða sambærilegt frá öðrum matsfyrirtækjum.

D. Innlend fjármálafyrirtæki, önnur en þau sem getið er í B-lið.

E. Sveitarfélög.

F. Skuldabréf tryggð með veði í íbúðarhúsnæði, útgefin af einstaklingum, fyrirtækjum eða fjármálafyrirtækjum. Skuldabréfin skulu almennt vera innan 80% af söluandvirði viðkomandi eignar, en þó aldrei umfram 90%.

Stjórn Íbúðalánasjóðs setur vikmörk fjárfestingar fyrir hvern flokk í áhættustýringarstefnu sjóðsins í ljósi mats á mótaðilaáhættu. Mörkin skulu vera tvíþætt og taka annars vegar til áhættustýringar sjóðsins og þarfar hans á að gæta jafnvægis í líftíma eigna og skulda og greiðsluflæðis og hins vegar taka til skammtímafjárstýringar sjóðsins.