Eignir lífeyrissjóðanna hafa lækkað um 4,7% á einu ári.

Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.716 ma.kr. í lok maí sl. og hækkaði um 22 ma.kr. í mánuðinum. Sé miðað við maí 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 84,8 ma.kr. eða 4,7%.  Þessar upplysingar koma fram í efnahagsyfirliti lífeyrissjóða, sem Seðlabanki  Íslands hefur tekið saman miðað við lok maímánaðar s.l.

Sú 4,7% lækkun á eignum lífeyrissjóðanna á einu ári skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008. Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrssjóðanna.


Sjá hér efnahagsyfirlit lífeyrissjóðanna