Eignir lífeyrissjóðanna 1.496 milljarðar króna í árslok 2006. Nær helmingsaukning á erlendri verðbréfaeign.

Um 23% aukning varð á eigum lífeyrissjóðanna á síðasta ári  miðað við eignir í árslok 2005. Eignir námu alls rúmlega 1.496 milljarða króna í lok desember s.l. miðað við tæplega 1.220 milljarða króna í árslok 2005. Aukningin nemur því um 277 milljarða króna. Mesta aukningin var í erlendum verðbréfum eða 48,3%%. Sjóðfélagalán hafa aukist um 18,5% á umræddu tímabili og nema nú lán til sjóðfélaga um 7,3% af heildareignum sjóðanna. Seðlabanki Íslands tók saman þessar upplýsingar.

 

 Eignaflokkar                                  

     Árslok  2005           

  Árslok 2006    

  Breyting í   %      

Útlán og verðbréfaeign

 1.179.883 m.kr.

1.475.569 m.kr.

25,1%

Verðbréf með föstum tekjum

   595.195 m. kr

 683.174 m.kr

14,8%

Sjóðfélagalán

     92.505 m. kr.

  109.630 m.kr.

18,5%

Verðbréf með breytilegum tekjum

   584.689 m.kr.

  792.395 m.kr.

35.5%

Innlend hlutabréf

   187.432 m.kr.

  237.898 m.kr.

26,9%

Erlend verðbréfaeign

   298.356 m.kr.

  442.502 m.kr.

48,3%

Hrein eign til greiðslu lífeyris

1.219.528 m.kr.

1.496.076 m.kr.

22,8%

Sjá hér nánar Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða.