Eignir lífeyrissjóðanna 1.439 milljarðar í lok nóvember s.l., þar af 404 milljarðar erlendis.

Um 18% aukning varð á eigum lífeyrissjóðanna fyrstu 11 mánuði ársins  miðað við eignir í árslok 2005. Eignir námu alls rúmlega 1.439 milljarða króna í nóvemberlok miðað við tæplega 1.220 milljarða króna í árslok 2005. Aukningin nemur því um 219 milljarða króna. Mesta aukningin var í erlendum verðbréfum eða 35,4%%. Sjóðfélagalán hafa aukist um 17,7% á umræddu tímabili og nema nú lán til sjóðfélaga um 7,6% af heildareignum sjóðanna. Seðlabanki Íslands tók saman þessar upplýsingar.  

  .

 Eignaflokkar                                  

     Árslok  2005           

 31. nóvember 2006    

  Breyting í   %      

Útlán og verðbréfaeign

 1.179.883 m.kr.

1.416.254 m.kr.

20.0%

Verðbréf með föstum tekjum

   595.195 m. kr

 673.930 m.kr

13,2%

Sjóðfélagalán

     92.505 m. kr.

  108.891 m.kr.

17,7%

Verðbréf með breytilegum tekjum

   584.689 m.kr.

  742.324 m.kr.

27,0%

Innlend hlutabréf

   187.432 m.kr.

  226.831 m.kr.

21,0%

Erlend verðbréfaeign

   298.356 m.kr.

  404.050 m.kr.

35,4%

Hrein eign til greiðslu lífeyris

1.219.528 m.kr.

1.438.649 m.kr.

18,0%