Aukaaðalfundur LL, 26. nóvember 2013

Stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða hefur ákveðið að boða til aukaaðalfundar, þriðjudaginn 26. nóvember 2013, kl. 11:30. Fundurinn verður haldinn í Gildissalnum, Sætúni 1/Guðrúnartúni 1.

Fundarboð hafa verið send á aðildarsjóðina en samkvæmt gildandi samþykktum LL eiga rétt til setu á aðalfundi með málfrelsi og tillögurétt stjórn, framkvæmdastjórar og lykilstarfsmenn aðildarsjóða auk starfsmanna LL. Á dagskrá fundarins verður kjör eins stjórnarmanns til þriggja ára.
Virðingarfyllst, f.h. stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða
Gunnar Baldvinsson, formaður
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri