Allt frá því að heimilir opnuðust fyrir lífeyrissjóðina að fjárfesta í erlendum gjaldmiðlum hafa með nokkru reglulegu millibili átt sér stað umræður um gengisáhættu og gengisvarnir og hvort þörf sé á að sjóðirnir taki upp virka gjaldmiðastýringu. Nú í vikunni héldu Landssamtök lífeyrisjóða fjölmennan fund um gengisvarnir sjóðanna.
Framsögumenn voru þeir Arnar Jónsson, sérfræðingur í Gjaldeyrismiðlun Landsbanka Íslands, sem fjallaði aðallega um gjaldeyrismarkaðurinn, alþjóðlegar fjárfestingar, gengisáhætta og gjaldeyrisstýringu. Stefán Halldórsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga. Erindi hans nefndist “ Eiga lífeyrissjóðir að verjast gjaldmiðlaáhættu eða sækjast eftir henni? Að lokum flutti Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar hjá Lífeyrissjóði sjómanna. Tryggvi fjallaði um gengisvarnir með hliðsjón af reynslu Lífeyrissjóðs sjómanna.
Erindi framsögumanna eru hér í PowerPoint:
Arnar Jónsson Stefán Halldórsson Tryggvi Tryggvason