Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 14. maí n.k. á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, flytja erindi sem hann nefnir "Lífeyrissjóðir á krossgötum”.
Fjörutíu ár er liðin um þessar mundir frá því lífeyrissjóðir hins almenna vinnumarkaðir voru settir á laggirnar á grundvelli samkomulags aðila vinnumarkaðarins vorið 1969. Mikil framsýni einkenndi ákvarðanir um skipulag lífeyrissjóðanna og hafa þeir vaxið upp í um 130% af landsframleiðslu eins árs. Ekki er síður mikilvægt að til skamms tíma áttu lífeyrissjóðirnir almennt nægar eignir á móti skuldbindingum sínum. Þróun þeirra í átt að því að geta tryggt launafólki mannsæmandi lífeyri eftir að starfsævi lýkur er þess vegna langt á veg komin. Í viðsnúningi á fjárhag sjóðanna úr því að vera mjög bágborinn eftir að verðbólgan hafði eytt eignum þeirra reyndist muna mest um verðtrygginguna. Nú glíma sjóðirnir við afleiðingar hrunsins á Íslandi og hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu. Að því leyti standa þeir á tímamótum og þurfa að horfast í augu við breyttan veruleika í ljósi nýrra efnahagslegra aðstæðna.
Aðalfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 14. maí 2009
kl. 14.30 á Grand Hótel Reykjavík.
Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara.
Erindi: “Lífeyrissjóðir á krossgötum.”
Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
Úthlutun rannsóknarstyrks LL
Aðalfundarstörf
Skýrsla stjórnar um starfsemi á liðnu starfsári.
Staðfesting ársreiknings.
Breytingar á samþykktum samtakanna.
Kjör stjórnar
Kjör löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
Ákvörðun um þóknun stjórnar.
Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
Ákvörðun árgjalds til samtakanna.
Önnur mál.
Rétt til setu á aðalfundi eiga stjórnir og framkvæmdastjórar aðildarsjóða samtakanna.