Varasamar tillögur um skattlagningu lífeyrissparnaðar.

Tillögur hafa verið lagðar fram um að breyta formi á skattlagningu lífeyrissparnaðar þannig að inngreiðslur í lífeyrissjóði verði ekki frádráttarbærar til skatts heldur myndi skattskyldar tekjur hjá viðkomandi einstaklingi, hvort heldur það er hann sjálfur eða launagreiðandi sem innir þær af hendi. Á móti verði greiðslur úr lífeyrissjóðum skattfrjálsar. Áhrif þessara breytinga yrðu margþætt og myndu hafa umtalsverð þjóðhagleg áhrif. Reynt hefur verið að halda því fram að þessar tillögur séu sárasaklausar! Samtök atvinnulífsins telja hins vegar þessar tillögur varhugaverðar.


Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman minnisblað um skattlagningu lífeyrissparnaðar þar sem farið er yfir þróun lífeyrissjóðakerfisins, hugsunina að baki kerfinu og áhrif fyrrgreindra breytinga. Þar segir m.a. að núverandi fyrirkomulag lífeyrissjóðakerfisins sé engin tilviljun heldur niðurstaða mikillar yfirlegu og ígrundaðra umræðna árum saman og hafi verið ætlað að standast til áratuga, enda sé uppbygging lífeyrissjóða langtímaverkefni sem þurfi að ná út yfir þarfir einnar kynslóðar. Hinir almennu lífeyrissjóðir aðila vinnumarkaðarins hafi verið í þróun í meira en 40 ár og það hafi þurft festu og framsýni að byggja þá upp.

Auk fyrrgreindra áhrifa af breytingu á skattlagningu lífeyrissparnaðar segir m.a. í minnisblaðinu að lakari lífeyrisréttindi úr lífeyrissjóðum hafi í för með sér hærri lífeyrisgreiðslur almannatrygginga vegna tekjutenginga á milli þessara tveggja stoða lífeyriskerfis landsmanna. Þetta samspil verði að hafa í huga þegar breytingar eru gerðar sem skerði lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóða.

Með skattlagningu lífeyrisgreiðslna væri skref stigið til baka frá kerfi sjóðssöfnunar í átt til gegnumstreymiskerfis, sem er þveröfugt  við það sem þörf er á í ljósi breyttrar aldurssamsetningar landsmanna. Undanfarin ár hefur einn lífeyrisþegi verið á móti hverjum sex íbúum á vinnualdri. Árið 2020 verður þetta hlutfall komið í 1 á móti 4, árið 2030 1 á móti 3 og árið 2050 1 á móti 2. Við slíkar aðstæður fær gegnumstreymiskerfi ekki staðist og lífeyrir byggður á sjóðssöfnum forsenda þess að skattbyrði vinnandi kynslóðarinnar verði þolanleg.

Þá er vakin á því athygli að huga verði í þessu sambandi að frjálsri för fólks á EES-svæðinu þar sem gildi ákveðnar grundvallarreglur um flutning lífeyrisréttinda á milli landa.  Hugmyndir um skattlagningu lífeyrisiðgjalda ganga þvert á þær reglur.


Sjá hér minnisblað frá Samtökum atvinnulífsins.