SPITAL-hópurinn sigraði í samkeppni um hönnun nýs Landspítala

Hönnunarteymi sem kallar sig SPITAL bar sigur úr býtum í samkeppni um hönnun nýs Landspítala.  Úrslit voru tilkynnt á Háskólatorgi Háskóla Íslands í dag og allar fimm tillögurnar í samkeppninni verða til sýnis þar fram eftir ágústmánuði.

Fulltrúar 20 lífeyrissjóða undirrituðu viljayfirlýsingu í nóvember 2009, ásamt fulltrúum ríkisstjórnarinnar, þar sem kveðið er á um samstarf um undirbúning að fjármögnun, útboði og framkvæmdum við nýbyggingu Landspítala við Hringbraut.