Skot sem geigar

Lífeyrissjóðir fá hlýjar kveðjur í grein eftir Gísla Gíslason, stjórnarmann Spalar ehf., í Fréttablaðinu í dag. Hann er þar að svara rangfærslum um kjör á lánum til Hvalfjarðarganga og fjallar í leiðinni um hlut lífeyrissjóða í framkvæmdinni. Grein Gísla fer hér á eftir.

Sigurður Gunnarsson skotveiðimaður víkur að lífeyrissjóðalánum til Hvalfjarðarganga í grein í Fréttablaðinu 15. apríl og segir þar að „ástæðan fyrir því að ekki er fyrir löngu búið að borga upp Hvalfjarðargöng er sú að lán lífeyrissjóða til þeirrar framkvæmdar voru með okurvöxtum.“ Þetta skot geigar hjá veiðimanninum og það svo um munar.

Íslenskir lífeyrissjóðir keyptu skuldabréf sem Spölur, eigandi væntanlegra Hvalfjarðarganga, gaf út. Þetta var fyrsta fjárfesting lífeyrissjóðanna í einkaframkvæmd og það í skuldabréfum sem hvorki voru með ríkisábyrgð eða tryggð með veði í fasteignum. Vextir á lánunum voru vissulega háir en lífeyrissjóðirnir þurftu eðlilega að tryggja vel hagsmuni sína og síns fólks. Aldeilis fráleitt er að kenna lánskjörin við okur. Fyrir Spöl skipti hins vegar meginmáli að lífeyrissjóðirnir skyldu sýna þá framsýni að brjóta ísinn og taka yfirleitt þátt í þessu mikla fjárfestingarverkefni. Afstaða þeirra hafði mikil og góð áhrif á aðra fjárfesta, ekki síst þá erlendu. Auðvelt er að færa rök fyrir því að án stuðnings forystumanna í íslensku lífeyrissjóðakerfi hefðu Hvalfjarðargöng tæplega orðið að veruleika á sínum tíma.

Ég er viðkvæmur fyrir því að skotum sé beint að lífeyrissjóðunum á forsendum sem veiðimaðurinn gefur sér og get upplýst hann og aðra um að Spölur greiddi upp upphaflegu lífeyrissjóðalánin strax haustið 2004. Félagið hefur síðan nokkur ár til að greiða niður önnur lán sín eða til 2018, lögum samkvæmt. Þar á meðal eru lífeyrissjóðalán sem komu til sögunnar við skuldbreytingu hjá Speli 2005 á verulega lægri vöxtum en þekkjast nú um stundir. Allt er málið því í eðlilegum farvegi og hið eina sem fór ekki eins og til var stofnað var að Spölur gat leyft sér að láta vegfarendur njóta þess frá upphafi að umferðin um göngin væri mun meiri en ráð var fyrir gert og þar með tekjustreymi til félagsins. Veggjaldið átti að fylgja verðlagi en hefur aldrei gert það. Gjaldið er þannig stórum lægra en ef það hefði tekið vísitöluhækkunum á hverjum tíma.

Ekkert bendir til annars en að Spölur verði skuldlaust félag 2018 og þeir sem stuðluðu að Hvalfjarðargöngum geti horft yfir farinn veg, býsna ánægðir með sín verk. Ég þakka lífeyrissjóðum fyrir þeirra hlut og framsýni. Það ættu skotveiðimenn líka að gera.

Meginmál]