Séreignarsparnaður telst ekki til tekna við útreikning á þátttöku í dvalarkostnaði

Í tilefni af umfjöllun í Morgunblaðinu sunnudaginn 10. nóvember undir fyrirsögninni „Dýr er vistin á dvalarheimilinu“ vilja Landssamtök lífeyrissjóða árétta að séreignarsparnaður telst ekki til tekna þegar metin er kostnaðarþátttaka íbúa á dvalar- eða hjúkrunarheimilum.