Samvinnulífeyrissjóðurinn lækkar vexti í 4,2%

Stjórn Samvinnulífeyrissjóðsins hefur ákveðið að bjóða sjóðfélögum sínum upp á 1. veðréttarlán á 4,2% föstum vöxtum.  Um er að ræða lán hvort heldur sem er jafngreiðslulán eða lán með jöfnum afborgunum.  Lánað er til allt að 40 ára.  Einnig lánar sjóðurinn hefðbundin sjóðfélagalán og eru vextir í dag 4,49% .